top of page

ARA Restaurant & Bar við Búðakór 1 í Kópavogi var stofnaður fyrir rúmum 10 árum og hefur frá upphafi verið fjölskyldurekinn veitingastaður og bar. Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á góða og trausta þjónustu, vandaðan mat og notalegt andrúmsloft þar sem gestir geta notið samveru við fjölskyldu og vini.
Við leggjum ríka áherslu á gæði í hráefni og faglega framsetningu á matseðli sem býður upp á fjölbreytt úrval rétta, þar á meðal pizzur, hamborgara og grillrétti. Jafnframt bjóðum við upp á gott úrval drykkja og aðstöðu til að fylgjast með helstu íþróttaviðburðum í beinni útsendingu.






bottom of page
